Æfðu með Indíönu í desember og haltu þér í ánægjulegri og raunhæfri æfingarútínu. 

Desember Heilsuáskorun Indíönu hefst 4. desember

⏰ Skráningu lýkur sunnudaginn 3. des kl. 23:59 ..

Stutt, skemmtileg og einföld Heilsuáskorun með hvetjandi þjálfara svo að þú eigir auðveldara með að halda þér í ánægjulegri og raunhæfri æfingarútínu í desember.

Þessi áskorun er hugsuð til að einfalda þér lífið og gefa þér góða leiðsögn og hvatningu í gegnum einn annríkasta tíma ársins svo þú þurfir ekki að fórna heilsunni fyrir verkefnalistann.

✅ Þrjár 25 mín æfingar á viku í þrjár vikur.
✅ Fjölbreyttar styrktar- og úthaldslotur.
✅ Mobility og core.
✅ Ketilbjöllur og eigin líkamsþyngd.
✅ Þú ferð í pott fyrir happdrætti!
✅ Uppskriftir og léttur fróðleikur um mataræði.

Setjum okkur einfalt og raunhæft markmið: Saman!

Þrjár fjölbreyttar 25 mínútna æfingar þrisvar sinnum í viku í þrjár vikur. Áhersla á alhliða styrk, mobility og létt cardio. Nýtum tímann vel og þú færð mjög skýra og hvetjandi leiðsögn á öllum æfingum.

Fyrirkomulagið er mjög einfalt og þægilegt: Þú klæðir þig í létt æfingaföt, finnur til tvær ketilbjöllur, býrð til smá gólfpláss heima fyrir (eða í þinni æfingastöð), ýtir á PLAY og það er eins og Indíana sé mætt til þín að þjálfa þig og æfa með þér samtímis.

Indíana leiðir þig (á myndbandsformi) í gegnum upphitun, æfingu og stuttar teygjur á hverri æfingu. Smá gólfpláss, æfingadýna, eigin líkamsþyngd og tvær ketilbjöllur (eða tvö handlóð) í sitthvori þyngd (fyrir efri + neðri líkama) henta fullkomlega.

,,.. mér finnst þú frábær kennari! Sú allra besta, mannlegasta og mest hvetjandi sem ég þekki. Það er alltaf gott að koma “til þín” á æfingu.’’  

,,Fullkomin tímalengd á æfingu fyrir upptekna móður sem hefur átt erfitt með að gefa sjálfri sér tíma hingað til. Æfingarnar gefa manni góða orku og kveikja á lönguninni til að hreyfa sig meira.’’

 

,,Mjög jákvætt að fá nokkrar útfærslur af æfingum og auðvelt að “skala” upp eða niður eftir dagsformi.’’

,,Elska að geta tekið æfingu svona bara hvenær sem hentar í mínu dagsplani, sem getur verið allavegana.”

 

,,Mér finnst viðmótið svo gott, að það er ekki bara verið að keyra, keyra, keyra .. ”

 

,,Það er virkilega þægilegt að hafa myndböndin í Kajabi appinu og geggjað að geta alltaf hakað við að hafa klárað æfingu.”

 

,,Elska hvað maður er að fá mikið út úr þessum 20-30 mín æfingum. Orkan líka góð á eftir.”

Fjárfestu í þér í desember! Skráning opin til 23:59 sunnudag ..

Skráningargjald 11.900 (happdrætti og matargrúppa innifalin).

Bónus #1 Áskoruninni fylgir aðgangur að lokuðum FB hóp þar sem Indíana deilir með þér einföldum og næringaríkum uppskriftum + fróðleik og hvatningu.

Bónus nr. #2 Við skráningu ferðu sjálfkrafa í pott fyrir happdrætti. Dregið 22. desember:

1. 12 vikna þjálfun hjá GoMove (val um hópþjálfun eða netþjálfunina Mjúkur Styrk) x 1
2. 20.000 gjafabréf frá H Verslun x 2
3. 10 skipta kort á H Bar (grautur + kaffi) x 3
4. Gjafakörfur frá BioBú x 3
5. Bætiefnakarfa frá Now Iceland x 2
6. Morgunverðarkarfa frá MUNA x 2
7. Hreinsiefnakarfa frá Sonett
8. 8 kg ketilbjalla frá TRX úr Hreysti x 2

Skráningu lýkur sunnudaginn 3. desember kl. 23:59 ..

Ef þú lendir í vandræðum með skráningu eða greiðslu getur þú sent póst á gomove@gomove.is

Fyrirtækið

Skráðu þig á póstlistann!