Yoga fyrir aktíva fætur: Spennulosun og endurheimt

3 vikna námskeið hefst mánudaginn 15. maí

✅ Skráðu þig neðst á síðunni!

 

Göngugarpur, hlaupari eða hjólari og vilt mýktina og slökun á móti?

3 vikna yoga námskeið með Írisi Dögg (@irisyogablisss) hefst 15. maí. Tímarnir eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 19:30-20:30 í æfingastöð GoMove á Hafnarbraut 9A.

Fullkomnir tímar fyrir göngugarpa, hlaupara, hjólara, íþróttafólk eða aðra með aktíva fætur. Oft vantar mýktina og slökunina á móti í slíkri hreyfingu. Þetta námskeið er sérstaklega stílað inn á að losa spennu og flýta fyrir endurheimt eftir slíka hreyfingu.

Uppbygging tímanna: 

1. Byrjað á stuttri hugleiðslu og öndun. 
2. Hitað upp með yogastöðum og jafnvægisæfingum til að virkja mikilvæga vöðvahópa í neðri hluta líkamans.
3. Rólegt flæði með standandi og krjúpandi stöðum til að losa um spennu. 
4. Öllum tímum lýkur í liggjandi stöðum, með áherslu á streitulosun og djúpslökun.

Mánudagstímar: Ökklar, hné, hamstrings og mjaðmir.
Miðvikudagstímar: Axlir, brjóstbak, rass og mjaðmasvæði.

Íris Dögg leiðir námskeiðið í glæsilegri og hlýlegri æfingastöð GoMove. Íris hefur lengi stundað fjallgöngur, fjallahjól og hlaup og hefur einlæga ástríðu fyrir því að blanda saman útivist og yoga.

Eftir námskeiðið ættir þú að hafa:

– fundið þínar go to upphitunaræfingar fyrir göngur, hlaup eða hjól til að taka með þér inn í sumarið
– kynnst leiðum til að losa um spennu eftir æfingar

 

Námskeiðinu fylgir aðgangur að æfingastöðinni um helgar eða laug + sunn kl. 09-15. Sturta er í stöðinni.

„Íris er góður jógakennari með fallega nærveru og gott hjartalag.“

„Íris hefur einstaka nærveru og jógatímarnir voru fjölbreyttir og allir frábærir.“

Námskeiðsgjald 19.900 kr.

*Ath. ef þú ert í staðarþjálfun hjá GoMove færð þú 50% af námskeiðsgjaldi. Til að nýta afsláttinn sendu póst á gomove@gomove.is Ef þú ert í netþjálfun hjá GoMove færð þú 20% afslátt af námskeiðsgjaldi. 

Fyrirspurnir fyrir þetta námskeið sendast á gomove@gomove.is

Fyrirtækið

Skráðu þig á póstlistann!