✅ NÝTT tímabil hefst mánudaginn 6. janúar
⏰ Tímarnir eru á mánudögum og miðvikudögum. kl. 18:30-19:30
💪🏼 + hægt að skrá sig í opna Tabata tíma á laugardögum kl. 11 eða 12
🏡 + Open Gym aðgangur alla daga vikunnar
Markmiðið á þessu námskeiði er að hafa gaman, styrkja allan líkamann og njóta sín í flæði við góða tónlist.
Æfingarnar eru 60 mínútur og hver tími samanstendur af upphitunaræfingum úr jazzballet og síðan styrktaræfingum úr dansi, barre, pilates og jóga. Endað er á 15 mínútna teygjum og slökun. Ath. ekki er um danstíma að ræða heldur styrktarþjálfun með dansívafi.
Unnið er á dýnu með eigin líkamsþyngd og létt lóð. Æfingarnar eru bæði taktfastar og rólegar í senn. Áhersla er lögð á að vinna með vandaða líkamsstöðu, bæta samhæfingu, finna tengingu við og styrkja djúpvöðva og auka liðleika.
Dansstyrkur gæti verið fullkomnið námskeið fyrir þig ef þú ert 20-45 ára (ath. aðeins viðmið ekki aldurskrafa) og hefur grunn úr dansi eða nýtur þín vel í æfingum sem eru framkvæmdar í takt við tónlist.
Yfirkennari og höfundur námskeiðsins er Magnea Ýr.
Vilt þú fá fíling fyrir tímunum í Dansstyrk? Smelltu hér til að sjá 30 mínútna æfingu frá Magneu, yfirkennara námskeiðsins.
„Alhliða skemmtilegheit þar sem maður finnur fyrir vöðum sem ég vissi ekki einu sinni að væru til. Svo nice og heimilisleg stemning og Magnea snillingur í að láta alla líða velkomna og séða með allskonar útfærslum. Gæti ekki mælt meira með!“
„Sem fyrrum dansari er þetta algjört throwback að fara aftur á æfingar sem krefjast þess að hugsa stanslaust um líkamsbeitingu og rútínuna sjálfa, algjör hugaleikfimi. Bæði einblínt á að styrkja stóru og litlu vöðvana en einnig auka liðleika – svo bara hafa gaman með skemmtilegri tónlist og fólki í þessu fallega rými á Kársnesinu!“
„Þetta eru ótrúlega peppandi og skemmtilegar æfingar með krefjandi og góðu prógrammi. Gott andrúmsloft og hvetjandi að vera í hópi með góðan kennara.“
„Það er ekkert sem kemur mér í jafn mikið stuð og þetta námskeið.“
„Dansstyrkur hefur hjálpað mér að elska að hreyfa mig.“
*Ath. ef þú ert nú þegar í annarri staðarþjálfun hjá GoMove færð þú 50% af námskeiðsgjaldi.
Til að nýta afsláttinn sendu póst á gomove@gomove.is