Það hefur aldrei verið eins auðvelt að halda sér í æfingarútínu samhliða brjálaðri dagskrá!
Síðasta tímabil hófst miðvikudaginn 6. september. Skráðu þig á biðlista ef þú vilt fá tilkynningu þegar við opnum næst fyrir skráningar.
Þegar það er brjálað að gera flýgur tíminn áfram og að koma sér á æfingu endar aftast á verkefnalistanum. En ekki lengur!
Í þessari netþjálfun setjum við okkur markmið um að æfa þrisvar sinnum í viku í 20-30 mínútur í senn. Þú og Indíana gerið þetta saman og sveigjanleikinn er mikill.
Mjúkur styrkur með Indíönu er fyrir konur sem vilja styrkja sig og líða betur, en hafa þurft að hafa of mikið fyrir því síðustu mánuði eða ár sökum tímaskorts eða orkuleysis.
Fyrsta æfingaáætlunin opnast á lokuðu svæði miðvikudaginn 6. september, og svo alltaf á sunnudögum eftir það. Saman brjótum við þetta niður með því að horfa alltaf á eina viku í einu og þú tekur æfingarnar þegar þér hentar best = mikið svigrúm.
Við leggjum áherslu á að mæta á dýnuna en svo þegar við erum mættar hlustum við á líkamann og æfum í takt við dagsformið. Þannig njótum við okkar betur og náum betri árangri, saman!
,,Mér finnst líka ákvörðunin að taka æfingu er orðin léttari, af því maður hefur eiginlega alltaf tök á því að kúpla sig út í 20-30 mín að taka æfingu. Þannig það er mjög jákvætt og hvetjandi.’’
,,Þó svo að það sé brjálað að gera þá gleymi ég ekki hreyfingunni. Mér finnst þetta í raun styrkja mann andlega, smá sigur að geta haldið sér við efnið í hreyfingu ásamt öllu öðru.’’
,,.. mér finnst þú frábær kennari! Sú allra besta, mannlegasta og mest hvetjandi sem ég þekki. Það er alltaf gott að koma “til þín” á æfingu.’’
,,Finn ég er orðin sterkari og líka komin með meira sjálfstraust að æfa, sem var alveg í núllinu.’’
,,Mér líður hrikalega vel á eftir. Það birtist í meiri þolinmæði gagnvart fjölskyldunni, mér sjálfri, og í samskiptum almennt.”
,,Fullkomin tímalengd á æfingu fyrir upptekna móður sem hefur átt erfitt með að gefa sjálfri sér tíma hingað til. Æfingarnar gefa manni góða orku og kveikja á lönguninni til að hreyfa sig meira.’’
,, .. er búin að finna mikinn mun á mér líkamlega þar sem bakið á mér er sérstaklega orðið mun betra.’’
,,Þetta er fyrsta prógrammið sem ég hef fylgt sem hefur aldrei alið á samviskubiti hjá mér. Mér finnst æfingarnar frábærar og vil halda áfram að gera nákvæmlega þessar æfingar því ég finn hvað mér líður betur og hvað ég verð betri.’’
,,Mér fannst mjög gott að fá viðurkenningu á því að það væri í lagi að sýna sér mildi því maður var jú ekki jafn vel upplagður í allar æfingar. Á þeim dögum tók ég líka sérstaklega til mín “vel gert að mæta”.’’
,,Í dag er ég klárlega sterkari líkamlega en áður. Ég á auðveldara með að “skella” mér á æfingu og gefa sjálfri mér tíma.’’
,,Mjög jákvætt að fá nokkrar útfærslur af æfingum og auðvelt að “skala” upp eða niður eftir dagsformi.’’
,,Elska hvað maður er að fá mikið út úr þessum 20-30 mín æfingum. Orkan líka góð á eftir.”
Vandamál eins og tímaskortur eða orkuleysi eru leyst með 20-30 mínútna æfingum með áherslu á alhliða styrk, mobility og cardio.
Indíana leiðir þig í gegnum upphitun, æfingu og stuttar teygjur á hverri æfingu. Eigin líkamsþyngd + 2 ketilbjöllur/2 handlóð í sitthvori þyngd henta fullkomlega í þessari þjálfun.
Eina sem þú þarft að gera er að klæða þig í æfingaföt, búa þér til gólfpláss heima eða í ræktinni, leggja niður æfingadýnu og ýta svo á PLAY og fylgja Indíönu eftir. Með þessu fyrirkomulagi fjarlægir þú strax mörg tímafrek flækjustig og auðveldar þér lífið!
Sjáðu eina eldri æfingu til að fá tilfinningu fyrir fyrirkomulaginu.
BÓNUS: Þessari þjálfun fylgir aðgangur að Facebook hópnum ”Alvöru matur og gæðasvefn: Raunhæf og ánægjuleg nálgun” en þar deilir Indíana fróðleik og uppskriftum úr eldhúsinu sínu = ótal nýjar hugmyndir að einföldum og nærandi máltíðum fyrir þig og fjölskylduna.
Fyrsta æfingaáætlunin verður aðgengileg miðvikudaginn 6. september en þú færð strax aðgang að Facebook hópnum ”Alvöru matur og gæðasvefn: Raunhæf og ánægjuleg nálgun” við skráningu!
Allur réttur áskilinn © 2023 · Alpha | Online Business Akademían