❌ FULLT Á 6 vikna kvöldnámskeið sem hefst mánudaginn 4. nóvember.
❌ FULLT á tvö 8 vikna námskeið sem hefjast þriðjudaginn 29. október og miðvikudaginn 30. október
🌙 Kvöldtímar 75 mínútur kl. 20:00-21:15
Þrjú Yin Yoga og Yoga Nidra námskeið hefjast í æfingastöð GoMove í lok október og byrjun nóvember undir leiðsögn Írisar Daggar:
1) FULLT – 6 vikna námskeið hefst mánudaginn 6. nóvember
2) FULLT – 8 vikna námskeið hefst þriðjudaginn 29. október.
3) FULLT – 8 vikna námskeið hefst miðvikudaginn 30. október.
Námskeiðið er fyrir alla sem vilja draga úr streitu, sinna endurheimt (recovery) og hlaða batteríin. Á námskeiðinu er skapað rými fyrir djúpa slökun einu sinni í viku, 75 mínútur í senn að kvöldi til.
Hver tími byrjar á hugleiðslu og öndun. Yin Yoga er notað til að róa hugann, losa um spennu og komast í slökunarástand. Í lok hvers tíma er svo gefið eftir með aðstoð Yoga Nidra.
Í Yin Yoga er sefkerfi líkamans virkjað með djúpri öndun og mjúkum yogastöðum. Stöðurnar eru sitjandi, krjúpandi og liggjandi. Unnið er með bandvef og liðamót og losað um uppsafnaða spennu. Góður tími er gefinn í hverri stöðu og er gefið eftir með hjálp djúprar öndunar.
Yoga Nidra er aldagömul aðferð til að gefa líkama og huga frið til heilunar. Yoga Nidra er liggjandi, leidd hugleiðsla sem stundum er kallað ‘’yogic sleep’’. Þar gefst tækifæri til að kyrra hugann og losa um streitu. Sumir segja að 30 mín af Yoga Nidra jafnist á við 2-3 klst. svefn.
„Ég er búin að vera hjá Írisi í jógatímum og guð minn góður hvað ég mæli með þeim, þetta er svo notalegt fyrir líkama og sál.“
„Ég hef ekki sofið svona vel lengi og tengi það við kvöld jógað.“
„Róaði mig niður en var líka smá krefjandi. Þetta eru tímar sem ég þarf klárlega á að halda í mitt líf núna..“
„Þetta var erfiðara en ég bjóst við. Umgjörðin og andrúmsloftið var mjög afslappað og þægilegt. Ég svaf eins og steinn í nótt og líður vel núna, greinilega teygt og snúið upp á hluti sem kominn var tími á.“
„Íris hefur einstaka nærveru og jógatímarnir voru fjölbreyttir og allir frábærir.“
Námskeiðinu fylgir aðgangur að Open Gym alla daga vikunnar. Í stöðinni eru ketilbjöllur, handlóð, þrektæki, dýnur, rúllur, nuddboltar o.fl. Sturta er í stöðinni.
*Ath. ef þú ert nú þegar í annarri staðarþjálfun hjá GoMove færð þú 50% af námskeiðsgjaldi. Til að nýta afsláttinn sendu póst á gomove@gomove.is
Fyrirspurnir fyrir þetta námskeið sendast á gomove@gomove.is