NÝTT tímabil í Yoga hefst mánudaginn 16. október
Skráðu þig í 4 eða 8 vikur
Aðgangur að öllum Open Gym tímum stöðvarinnar fylgir
NÝTT tímabil í Yoga fyrir aktíva fætur með Írisi Dögg (@irisyogablisss) hefst mánudaginn 16. október. Tímarnir eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 19:30-20:30 í æfingastöð GoMove á Kársnesi.
Fullkomnir tímar fyrir íþróttafólk, göngugarpa, hlaupara, hjólara eða aðra með aktíva fætur. Oft vantar mýktina og slökunina á móti slíkri hreyfingu. Þetta námskeið er sérstaklega stílað inn á að losa spennu í baki, mjaðmasvæði, öxlum, bjóstbaki og öðrum svæðum þar sem safnast oft spenna og aðstoða við endurheimt (recovery).
Gefðu þér markvisst 60 mínútur tvisvar í viku að kvöldi til til að hlaða batteríin og gefa líkamanum það sem hann þarf á að halda.
Uppbygging tímanna:
1. Byrjað á stuttri hugleiðslu og öndun til að róa hugann.
2. Hitað upp með yogastöðum og jafnvægisæfingum til að virkja mikilvæga vöðvahópa í neðri hluta líkamans.
3. Rólegt flæði með standandi og krjúpandi stöðum til að losa um spennu.
4. Öllum tímum lýkur í liggjandi stöðum, með áherslu á streitulosun og djúpslökun.
Mánudagstímar: Ökklar, hné, hamstrings og mjaðmir.
Miðvikudagstímar: Axlir, brjóstbak, rass og mjaðmasvæði.
Íris Dögg leiðir námskeiðið í glæsilegri og hlýlegri æfingastöð GoMove. Íris hefur lengi stundað fjallgöngur, fjallahjól og hlaup og hefur einlæga ástríðu fyrir því að blanda saman útivist og yoga.
Eftir námskeiðið ættir þú að hafa:
– fundið þínar go to upphitunaræfingar fyrir göngur, hlaup, hjól eða aðra hreyfingu
– kynnst leiðum til að losa um spennu eftir æfingar
Námskeiðinu fylgir aðgangur að öllum Open Gym tímum stöðvarinnar sem þú sérð í tímatöflunni. Sturta er í stöðinni.
„Íris er góður jógakennari með fallega nærveru og gott hjartalag.“
„Íris hefur einstaka nærveru og jógatímarnir voru fjölbreyttir og allir frábærir.“
*Ath. ef þú ert nú þegar í annarri staðarþjálfun hjá GoMove færð þú 50% af námskeiðsgjaldi. Til að nýta afsláttinn sendu póst á gomove@gomove.is Ef þú ert í netþjálfun hjá GoMove færð þú 20% afslátt af námskeiðsgjaldi.
Fyrirspurnir fyrir þetta námskeið sendast á gomove@gomove.is
Allur réttur áskilinn © 2023 · Alpha | Online Business Akademían