HomeSkilmálar

Skilmálar

Um GoMove.is

GoMove ehf.

Kt: 641022-0120

Hafnarbraut 9A, Kársnesi

gomove@gomove.is

EFTIRFARANDI SKILMÁLAR GILDA UM HEIMSÓKN ÞÍNA Á VEFSÍÐUNA OG ÖLL VIÐSKIPTI SEM ÞÚ KANNT AÐ GERA UM VEFSÍÐUNA, NÚ EÐA SÍÐAR.

Réttur til að hætta við pantanir

GoMove ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. 

Efni á heimasíðu og námskeiðum / Höfundaréttur

Allt efni á heimasíðu GoMove ehf. og allt efni á netnámskeiðum sem seljandi bíður upp á er í eigu seljanda. Kaupanda er óheimilt að afrita efnið eða að deila því áfram.

Einstaklingsaðgangur

Óheimilt er að deila vörum eða áskrift með öðrum sem hefur ekki greitt fyrir aðgang að tiltekinni vöru eða þjónustu. Þú kaupir aðgang fyrir þig eina/einan.

Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) í mánaðarlegri áskrift

Kaupandi sem skráir sig í mánaðarlega áskrift hjá GoMove ehf. skuldbindur sig til að greiða mánaðarlega (á 30 daga fresti) fyrir námskeið. Kaupandi þarf sjálfur að segja upp áskrift ef hann vill ekki lengur hafa aðgang að vörunni eða þjónustunni sem hann keypti. Rukkun fyrir áskrift verður send þar til kaupandi segir henni upp.

Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) þegar keypt er stakt námskeið

Kaupandi sem kaupir stakt námskeið (eða aðra vöru) greiðir fyrirfram. Ef um netnámskeið er að ræða er ekki hægt að fara fram á endurgreiðslu eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi.

Endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eftir að búið er að greiða áskriftargjald eða stakt námskeiðsgjald, enda er alltaf greitt fyrirfram fyrir verðmæti sem kaupandi fær. Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þáttakandi hefur ekki nýtt sér vöruna eða þjónustuna sem keypt var.

Uppsögn á áskrift

Kaupandi getur sagt upp áskrift að vöru eða þjónustu á meðlimasvæði á heimasíðu GoMove ehf.: www.gomove.is Uppsögn tekur strax gildi sem þýðir að iðkandi fær ekki annan reikning og hann missir þá um leið aðgang að vöru eða þjónustu sem verið er að segja upp.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð geta breyst án fyrirvara. Ef áskriftargjald (mánaðarlegar áskriftir) hækkar mun GoMove ehf. senda tilkynningu þar um og taka verðbreytingar þá gildi frá og með næstu mánaðarmótum. 

Eigin ábyrgð

Athugaðu að kaupandi ber ábyrgð á framkvæmd og niðurstöðu af vörum eða þjónustu frá GoMove ehf. Kaupandi ber ábyrgð á eigin heilsu og verður að treysta sér til að framkvæma æfingar eða til að nýta aðra þjónustu sem hann fær hjá GoMove ehf. Við hvetjum kaupanda til að hlusta á eigin líkama og verður ávallt að huga að eigin getu þegar tekin er ákvörðun um að kaupa og nýta sér þjónustu hjá GoMove ehf.. Ef um meiðsli eða önnur veikindi er að ræða hvetjum við iðkanda til að ráðfæra sig við sérfræðing áður en keypt er þjónustu hjá GoMove ehf..

Með kaupum á vöru eða þjónustu hjá GoMove ehf. staðfestir kaupandi að hann beri þessa ábyrgð (eigin áhættu). 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur GoMove ehf.. á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Breytingar 

GoMove ehf. áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum. Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á heimasíðunni.

Þjálfun

Fyrirtækið

Skráðu þig á póstlistann!

Allur réttur áskilinn © 2024 · Alpha | Online Business Akademían