Hópþjálfun fyrir konur í æfingastöð GoMove.
Hlýjar móttökur og persónuleg leiðsögn í hvetjandi umhverfi.
Fjölbreyttir 45 mínútna tímar þar sem hefðbundnum æfingum (t.d. deadlift, hnébeygja og planki) er blandað saman við óhefðbundnar æfingar (t.d. ketilbjölluflæði og animal flow) til að byggja upp alhliða styrk, bæta liðleika og auka úthald.
Í þessari þjálfun færð þú persónulega nálgun og hvetjandi leiðsögn frá þjálfurunum okkar. Þeir sýna þér hvernig þú getur fengið meira úr öllum æfingunum þínum og þar með öðlast aukið sjálfstraust þegar kemur að hreyfingu.
Æfum mest með ketilbjöllur, handlóð, róðravélar, hjól og eigin líkamsþyngd.
Þjálfarar: Indíana (yfirþjálfari), Erla Rut, Ingibjörg, Kristín, Finnur Orri og Hulda.
Ef þú vilt kanna hvort þjálfunin henti í báðar áttir leyfðu okkur að kynnast þér. Fylltu út form og við höfum samband sem allra fyrst.
Umsagnir …
„Frábær og hlý stöð, öll velkomin með hvaða getustig sem er. Gæði er rauði þráðurinn í allri vinnunni, í þjálfun, æfingum og samskiptum við iðkendur. Algjör griðastaður til að koma og sinna sjálfri sér.“
„Besta æfingakerfi sem ég hef kynnst verandi 3ja barna móðir í vinnu og með lítinn frítíma hefur þetta alveg bjargað minni geðheilsu. Stuttar en svo ótrúlega hnitmiðaðar æfingar og virkilega persónuleg þjálfun sem drífur mann áfram í sínum markmiðum.“
„Allir þjálfarar alveg frábærir. Með sína styrkleika og nálgun.“
„Finnst æfingarnar algjörlega frábærar. Hafði ekki hreyft mig lengi áður en ég byrjaði í GoMove og hef tekið svo miklum framförum á sl 2 árum - Fjölbreytileiki en svo skýrt heildarmarkmið sem ég er mjög ánægð með.“
„Fullkomnar æfingar - maður getur skalað upp og niður, stjórnað ákefð og þyngd.“
„Mér hefur fundist æfingarnar skemmtilegar og krefjandi. Góð tónlist. Finnst æði að koma í tabata á laugardagsmorgni, þá hefur maður sko sigrað helgina.“
„Líður ofboðslega vel. Hlýleg stöð sem tekur vel utan um mann á æfingum.“
„Frábær staður til að styrkja sig. Hvetjandi umhverfi og góð þjálfun. Mér hefur td. liðið vel allan tímann sem ég hef æft hjá GoMove.“
„Mér líður svo vel hjá ykkur og elska alltaf jafn mikið að mæta! Hlakka alltaf til sama hvort það sé hóptími, tabata eða Open Gym sem ég elska.“
„Virkilega góðar æfingar. Gott að hafa stundum sömu æfingarnar. Þá þjálfast maður enn betur í þeim. Dettur ekkert sérstakt í hug að gera öðruvísi. Frábært að þið komið oft með nokkrar útfærslur svo allir finna það sem hentar þeim. Sem er mjög mikilvægt.“
„Mjög flott stöð og aðbúnaður og líður mjög vel að mæta.“
„Ákveðið andrúmsloft hjá ykkur sem verður til þess að manni líður vel á öllum æfingum.“
„Ég elska andrúmsloftið hjá GoMove – hlýlegt, faglegt og hvetjandi. Þjálfararnir eru frábærir og ná að gera hópþjálfunina einstaklega persónulega. Ég hef tekið miklum framförum síðan ég byrjaði og hlakka alltaf til næstu æfingar.“
„Andrúmsloftið, þjálfararnir og stöðin eru til fyrirmyndar, elska að mæta í tíma, það er tekið vel á móti manni og svo gott að líða svona vel á æfingu.“
„Mjög góð, hlý nálgun en líka hvatning - þetta að taka stöðuna hjá sér á hverjum degi og svo athuga hvort maður vilji þyngja, prufa að gefa aðeins meira og líka setja í samhengi við æfingu í síðustu viku/næstu viku.“
„Mæli 100% með þessari stöð.“
„Fæ alltaf frábæra leiðsögn. Æfingarnar eru útskýrðar vel og finn það að það er fylgst vel með ef maður má gera betur.“
„Ég er að sjá þvílíkan mun á sjálfri mér, hef örugglega aldrei verið svona sterk og það er svo góð tilfinning. Finnst líka segja mikið að ég geri allt sem ég get til að komast á æfingar 2-3x í viku.“
„Góðir þjálfarar og allar æfingar mjög vel útskýrðar og sýndar.“
„Frábær leiðsögn og mikil áhersla á tækni og vandaða líkamsstöðu.“